Um Goðhól

01
Sagan

Hver erum við?

Goðhóll býður upp á ráðgjöf við innleiðingu jafnlauna-, stjórnunar- og gæðakerfa

Stofnað 2016

Fyrirtækið Goðhóll ehf. var stofnað árið 2016 af Guðnýju Finnsdóttur. Frá stofnun hefur Goðhóll unnið margvísleg verkefni fyrir bæði stofnanir og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Goðhóll hefur verið leiðandi við innleiðingu jafnlaunastaðalsins ÍST 85 á landsvísu. Auk þess hefur Goðhóll ráðgjöf leitt verkefni á vegum aðgerðahóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til þess að vinna að launajafnrétti kynjanna á Íslandi.

Gildi fyrirtækisins eru gæði, gagn og gleði.

02
Starfsfólk

Þekking og reynsla

Guðný Finnsdóttir, Ráðgjöf, ráðgjafarþjónusta, innleiðingar stjórnunarkerfa, innri úttektir, Stjórnunarráðgjöf, jafnlaunakerfi, jafnlaunavottun
Guðný Finnsdóttir
Framkvæmdastjóri

Guðný Finnsdóttir er ávallt kölluð „Gýja“ og er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Hún hefur auk þess lokið námi í straumlínustjórnun (e. lean management) hjá Opna háskólanum. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum verkefnum á sviði jafnlaunavottunar, verkefna-, gæða-, breytinga- og straumlínustjórnunar. Þá er hún grafískur hönnuður og starfaði í sex ár á Fíton auglýsingastofu. Hún hafði frumkvæði að því að stofna faghóp um breytingastjórnun innan Stjórnvísi og gegndi formennsku faghópsins árin 2012–2016. Guðný sat í stjórn Stjórnvísi 2016-2017.