Þjónusta
01
Gæði
Gæðakerfi
Verkefnastjórnun
Við höfum áralanga reynslu af því að stýra verkefnum og vinna með stjórnendum að því að ná meiri árangri í starfi. Mikilvægt er að gera stöðumat eftir því hvernig verkefninu vindur áfram. Við höfum ávallt lagt mikið upp úr góðum samskiptum og upplýsingagjöf.
- Verkefnastýring
- Boðun funda
- Stöðumat
- Upplýsingagjöf
Skráning ferla
Þegar hafist er handa við gerð gæðahandbókar er framkvæmt stöðumat. Þegar búið er að skilgreina hvað á að fara í gæðahandbókina aðstoðum við þig við að skipa ritstjórn fyrir hvert ferli og skilgreina ábyrgð. Við aðstoðum þig við að velja þá framsetningu sem hentar þínum vinnustað. Við tryggjum að drög séu rýnd áður en lokaútgáfa er gefin út.
- Stöðumat
- Ritstjórn
- Skilgreining ábyrgðar
- Rýni
- Útgáfa
Innleiðing gæðahandbóka
Þegar skráningu ferla er lokið er innleiðingin mikilvæg til að tryggja að unnið sé eftir skráðu verklagi. Við getum haldið kynningarfundi þar sem farið er yfir virkni gæðahandbókarinnar með starfsfólki og kynnt útgefin ferli. Þegar breytingar í bæði ytra og innra umhverfi eiga sér stað er mikilvægt að uppfæra útgefið verklag og endurútgefa sé þess þörf.
- Fundir
- Kennsla
- Rýni
- Endurútgáfa
02
Launamál
Jafnlaunakerfi
Launagreiningar
Eftir að búið er að flokka öll störf leiðir launagreining í ljós hvort óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar. Niðurstaðan sýnir hvort útlagar hafi greinst frá settu vikmarki auk þess að sýna fjarlægð hvers starfsmanns frá spágildi bæði í krónum og prósentuhlutfalli.
- Mat starfa
- Aðhvarfsgreining
- Útlagagreining
- Niðurstöðuskýrsla
Skýrslugerð
Þú færð senda samantekt með helstu niðurstöðum launagreiningarinnar ásamt ítarlegri niðurstöðustkýrslu sem inniheldur myndræna framsetningu á niðurstöðum.
- Samantekt
- Útlagagreining
- Gröf
- Niðurstöðuskýrsla
- Kynningarfundur
Stjórnun rýnifunda
Þegar búið er að greina hvort óútskýrður kynbundinn launamur sé til staðar getum við farið yfir niðurstöðurnar með þér og ráðlagt um aðgerðir hafi frávik komið í ljós. Farið er yfir núverandi stöðu og ákvarðanir teknar um úrbætur sé þeirra þörf.
- Skýrsludrög
- Rýnifundur
- Úrbótaáætlun
- Lokaskýrsla
03
Úttektir
Innri úttektir
Innri úttektir
Við höfum sérhæft okkur í vönduðum innri úttektum sem geta nýst þér að ná árangri í úttektum á vottuðum stjórnunarkerfum s.s. á sviði jafnlauna- og gæðastjórnunar. Unnið er eftir úttektaráætlunum þar sem búið er að skilgreina úttektaratriði. Innri úttekt leiðir í ljós frávik frá skilgreindu úttektaratriði.
- Úttektaráætlun
- Undirbúningur
- Framkvæmd
- Yfirferð ferla
- Frávik koma í ljós
Innri úttektarskýrslur
Niðurstöður innri úttektar eru settar fram í innri úttektarskýrslu þar sem fram geta komið frávik, athugasemdir og möguleg tækifæri. Skýrslan getur m.a. nýst á rýnifundi stjórnenda þar sem farið er yfir niðurstöðurnar.
- Skýrslugerð
- Ábyrgð skilgreind
- Niðurstöðufundur
- Úrbótaáætlun
- Úrbætur
Eftirúttektir
Með eftirúttekt er farið yfir hvernig til hefur tekist að vinna úr niðurstöðum innri úttektar. Eftirúttekt getur nýst þér við að tryggja að rétt hafi verið staðið að úrbótum og unniði samkvæmt stöðlum og skráðu verklagi í gæðahandbók.
- Lokafundur
- Lokun frávika
- Lokun athugasemda
- Lokun úttektar
